27.2.2025 | 10:43
Hvað liggur að baki?
Það sætir furðu af hverju í ósköpunum íslenskir ráðamenn eru tilbúnir að moka peningum í mann og málstað sem er svo augljóslega tapaður. Úkraína átti aldrei séns í Rússland og Bandaríkin stóðu aldrei þétt að baki þeim, heldur var þetta frekar stuðningur á hliðarlínunni. Fyrir Evrópubúa virðist þetta hins vegar vera upp líf eða dauða.
Nú þegar Trump er á góðri leið með að enda stríðið ætla ráðamenn samt að halda áfram að ausa peningum og vopnum í stríð sem er búið.
Eins og hin danska Mette sagði er friður hættulegri en stríð í þeirra augum. Þetta er orðið eins og skáldsagan 1984 þar sem stríð er friður.
Af hverju að halda áfram þessu peningaaustri?
Eina skýringin sem ég fæ er að þessir sömu ráðamenn sem halda stríðskyndlinum sem hæst á lofti hafa beina fjárhagslega hagsmuni af því að halda áfram. Fyrir hvern milljarð sem eyrnamerktur er Úkraínu fer ákveðin prósenta inn á einkareikning þeirra. Mjög auðvelt í framkvæmd þegar svo spillt land sem Úkraína er á í hlut.
Aðeins helmingurinn af peningum og vopnum sem Bandaríkin sendu rataði á rétta staði, hitt endaði í vasa hinn fjölmörgu spilltu embættismanna og kjörinna fulltrúa á leiðinni. Af hverju ætti þetta að vera eitthvað öðruvísi hér á landi? Ekki hefur Ísland verið þekkt fyrir spillingaleysi hingað til.
Önnur skýringin er að ráðamenn okkar eru svo afvegaleiddir í blekkingunni og blindir í hatri að öll skynsemi nær ekki til þeirra. Miklu betra að slíta á stjórnmálatengsl við Rússland og nú lítillækka æðsta mann Bandaríkjanna. Þetta myndi þýða að ráðamenn séu hver öðrum heimskari.
Eru ráðamenn okkar svona heimskir eða fitna aflandsreikningar þeirra feitt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2025 | 14:16
2 milljarðar í viðbót - í þjóðaratkvæðagreiðslu
Svo virðist sem íslenskum stjórnvöldum þyki ekki nóg gert í vopnakaupum. Kjötkvarnirnar eru kannski farnar að hökta. 2 milljörðum í viðbót vill ríkisstjórnin henda á bálið.
Nú á tímum þegar þjóðaratkvæðagreiðsla er svarið við öllu mögulegu er tilvalið að spyrja þjóðina hvort hún vilji borga fyrir meiri vopn til að kynda bálið í Úkraínu og Rússlandi.
Reyndar sýnir skoðanakönnun prósent frá því í haust og birt hefur verið hér á blogginu svo afgerandi neikvæða afstöðu þjóðarinnar, að það mætti spara með því að gleyma bara málinu.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/02/24/island_eykur_fjarstudning_vid_ukrainu/
https://gegnstridi.blog.is/blog/gegnstridi/image/1446241/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.2.2025 | 00:30
Þokkalegur félagsskapur
Maður er nefndur Volodomyr. Hann hefur nýverið leitt um milljón þegna sinna til slátrunar og limlestingar. Að launum er honum boðið að útskýra fyrir öðrum Evrópubúum að það þurfi meiri her.
Og menn hlusta af athygli á spekina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2025 | 23:11
1/3 vopna til Úkraínu seld áfram á svörtum markaði
Í Brussel í síðustu viku sat ég við hlið dansk manns sem hafði það að atvinnu að selja vopn. Hann staðfesti sem ég hef haldið fram lengi lengi að þriðjungur vopnanna sem sendir voru til Úkraínu var síðan seldur áfram á svörtum markaði. Það eru að sjálfsögðu Zelensky og vinir hans, herforingjar og fleiri spilltir úkraínumenn sem sjá sér leik á borði til að fóðra eigin vasa.
Þess vegna var Zelensky á hverjum fjarfundinum á fætur öðrum og á fundum hjá öllum ríkisstjórnum sem vildu hleypa honum að, endalaust betlandi um fleiri vopn. Fannst engum það skrítið nema mér?
Kannski muna einhverjir eftir úkraínsku flugvélinni sem hrapaði í Grikklandi, full af vopnum á leið til Bangladesh. Opinbera skýringin var að þetta væru vopn frá Serbíu eða eitthvað annað álíka fáránlegt. Hver sem hefur smá vott af heila hlýtur að sjá í gegnum þetta.
Svo er komið í ljós að Zelensky segist ekki hafa fengið 100 milljarða dollara sem send voru til aðstoðar Úkraínu "til að standa vörð um lýðræði og tjáningarfrelsi." En auðvitað fjalla íslenskir fjölmiðlar ekki um það.
Í þessu samhengi ber að geta að Zelensky boðaði ekki til lögbundinna kosninga þegar hans tími var búinn og hefur nú bannað alla aðra stjórnarflokka, sem og fjölmiðla sem ekki lofsyngja hann. Má segja að hann hafi tekið lýðræði og tjáningarfrelsi upp í nýjar hæðir og við Evrópuþjóðir hljótum að apa þetta upp eftir honum.
Minnir mig á söguna 1984: Stríð er friður, frelsi er þrældómur og fáfræði er styrkleiki. Í okkar samfélagi er það: Lýðræði þýðir engar kosningar og tjáningarfrelsi þýðir að enginn fjölmiðill má starfa nema hann lofsyngi foringjann.
Óskaplega líta íslenskir stjórnmálamenn nú hálfvitalegir út búnir að samþykkja að kaupa vopn fyrir marga milljarða og senda enn fleiri milljarða í peningagjafir til Úkraínu. Man einhver eftir þegar Katrín Jakobs og Þórdís Kolbrún fóru með ferðatösku fulla af seðlum út handa Zelensy? Kannski man hann ekkert eftir að hafa fengið þá gjöf heldur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.12.2024 | 13:50
Herskáir Evrópumenn
Fyrir skemmstu sýndi skoðanakönnun að yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga væri andsnúinn því að íslenska ríkið keypti vopn til að senda í stríðið í Úkraínu.
Á sama tíma eru íbúar Evrópusambandsins óðir og uppvægir í að hella olíu á eldinn.
Stríðsmenningin í Evrópu ristir djúpt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2024 | 18:50
Vill þjóð í friðargöngu ganga í herveldi?
Í dag er gengið til friðar niður Laugaveg. Sú Þorláksmessuhefð komst á þegar kalda stríðið stóð hátt, fyrir nærri hálfri öld síðan. Seint verður sagt að það sé sérlega friðsamt í heiminum þessa dagana. Barist er víða og fólki slátrað eins og enginn sé morgundagurinn. Í Úkraínu er líklega búið að drepa eða limlesta vel á aðra milljón ungra manna.
Evrópusambandið er ákafur gerandi í þeim leik, og er stolt af því.
Á sama tíma segist ríkisstjórn Íslands vilja ýta af stað ferli sem miðar að því að gera Íslendinga að þegnum í því sama Evrópusambandi.
Þeir sem ganga niður Laugaveginn í dag ættu að velta fyrir sér hvort þeir vilji gera börnum sínum og barnabörnum að lúta því sambandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2024 | 20:02
Stóra lygin að Rússar ætli að ráðast inn í fleiri lönd
Nú er sænskum almenningi talið trú um að Pútín sé með innrás í Svíþjóð á teikniborðinu. Því þurfi að skipuleggja grafreiti fyrir hálfa milljón Svía og bæklingur sendur á hvert heimili um að gera sig klár fyrir stríð.
Alveg eins og almenningi í Litháen er talið trú um að Pútín ætli næst að ráðast þangað inn.
Sem betur fer eru einhverjir sem sjá í gegnum þetta bull. Chris Forsne, fyrrum þáttastjórnandi SVT gagnrýnir þessa lygi sænskra yfirvalda. Hún bendir á að sögulega sé þá séu það Rússar sem hafi frekar þurft að óttast árás frá Svíum en Svíar árás frá Rússum.
Ætli sænskir hergagnaframleiðendur standi fyrir þessum áróðri og óttastjórnun, bara til að hrinda þriðju heimstyrjöldinni af stað og selja fullt af vopnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2024 | 14:02
Útrýming mannkyns gæti frestast
Núverandi forseti Bandaríkjanna ákvað að gera alvöru tilraun til að hrinda af stað heimsstyrjöld með eldflaugaárás á Rússland þann 11. desember. Nýkjörinn forseti sem tekur við í janúar bað alla aðila lengstra orða að sýna stillingu. Rússar gerðu það, líklega í von um að sá nýkjörni muni spara sprengjurnar.
Sagt er frá málinu í smáatriðum í grein Scott Ritter á Substack:
https://scottritter.substack.com/p/how-trump-saved-christmas
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2024 | 23:14
Hernaðarandstæðingar í fjölmiðlum
Fréttastofa RÚV tók Guttorm Þorsteinsson formann SHA tali vegna uppbyggingar hernaðarmannvirkja á Íslandi. Fréttina má lesa hér: https://fridur.us3.list-manage.com/track/click?u=2bd2db42c5b926dc8cd6ebb30&id=323a55958f&e=295fb20e5b
Guttormur og Soffía Sigurðardóttir, miðnefndarfulltrúi SHA, voru sömuleiðis viðmælendur Rauða borðsins á Samstöðinni þar sem var löng og góð umræða um málefnið: https://fridur.us3.list-manage.com/track/click?u=2bd2db42c5b926dc8cd6ebb30&id=2d9de04073&e=295fb20e5b
Stefán Pálsson úr miðnefnd SHA var einnig í löngu viðtali í morgunútvarpi Rásar 1 þar sem rætt var um útgáfu bókarinnar Gengið til friðar o.fl. - Hlýða má á viðtalið hér: https://fridur.us3.list-manage.com/track/click?u=2bd2db42c5b926dc8cd6ebb30&id=c3e6da0742&e=295fb20e5b (Byrjar á 1:09:30)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2024 | 00:34
Ákall í Þýskalandi
Sífellt fleiri hafa efasemdir um ágæti stríðsins í Úkraínu og hættan á heimsstyrjöld er meiri en nokkru sinni áður. Hópur þekktra Þjóðverja hefur skrifað ákall gegn stríði, sem Sahra Wagenknecht segir hér frá:
https://www.youtube.com/watch?v=F1HBIqt38xo
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gegn stríði
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar